Hver er stóri björn?
Það að vera undir
undir eftirliti andargiftarinnar allan sólarhringinn er bæði ljúft og sárt. Það að láta berja sig áfram til þess að koma hugmyndum í verk þegar "Honum" dettur í hug. Og til þess að þóknast "Honum" er aðeins eitt, það er að vinna. Stundum gengur vel en stundum miður. Ef ég stend mig ekki verður "Hann" æfur, og þá er ekki gaman. Helstu einkenni "Hans" eru að "Hann" fær allar þessar frábæru hugmyndir. Og þær eru það sem öllu máli skiptir. Og "Hann" þolir ekki þegar ég er að sinna allskonar hvabbi í öðru fólki. Ha; Hvað borðar "Hann"? Jú, "Hann" borðar flatbrauð á hverjum degi, og kaffi með. En á sunnudögum fær "Hann" sér "svanavatn", og á laugardaginn 12. maí, kl. 1520 mætir "Hann" í limmósíunni sinni og býður gestum að dreypa á "svanavatni" og gera sér glaðan dag.
|